Bogfimiæfingar

Bogfimifélagið Boginn býður nú upp á æfingar í bogfimi!

Æfingar í bogfimi fyrir börn og ungmenni sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, skemmtilegar og líflegar æfingar þar sem við einbeitum okkur að hafa gaman að skjóta úr boga.

æfingaskipulag fyrir æfingar í bogfimi vor önn 2023
Æfingaskipulag fyrir haust önn 2024. Æfingar hefjast mánudaginn 2. september 2024.

Tímabil æfinga skiptast í 3 annir á ári.
– Vor Önn: 3. janúar til 30. apríl
– Sumar Önn: 1. maí til 31. ágúst
– Haust Önn: 1. september til 22. desember


Krakka Æfingar

Aldur: 10-12 ára (2012-2014)

Æfingartími:
– Mánudagar: 16:30 til 17:30
– Miðvikudagar: 16:30 til 17:30

Verð á önn: 50.000 kr.

U16 ára Æfingar

Aldur: 13-15 ára (2009-2011)

Æfingartími:
– Mánudagar: 16:30 til 17:30
– Miðvikudagar: 16:30 til 17:30

Verð á önn: 50.000 kr.

U21 ára Æfingar

Aldur: 16-20 ára (2008-2004)

Æfingartími:
– Þriðjudagar: 18:30 til 20:30
– Fimmtudagar: 18:30 til 20:30

Verð á önn: 50.000 kr.

Um æfingarnar

Velkomin í Bogfimifélagið Bogann! Við bjóðum upp á æfingar í bogfimi fyrir öll færnistig, frá byrjendum til reyndra bogmanna.

Hægt er að sjá æfingaskipulag hér fyrir ofan. Við útvegum allan nauðsynlegan búnað en þér er velkomið að koma með þinn eigin ef þú átt hann. Skráningar fara fram á Sportabler verslun okkar sem hægt er að fara á hér fyrir ofan. Hægt er að greiða með frístundastyrknum á öllum æfingum sem við erum með fyrir krakka yngri en 18 ára.

Æfingar fara fram í Bogfimisetrinu, Dugguvogi 2, Reykjavík. Bogfimisetrið er opið á öllum dögum frá 14-21 og fyrir yfir 16 ára er hægt að skrá sig einnig með mánaðarkort í bogfimisetrinu til að mæta utan æfinga og skjóta (fyrir undir 16 ára þarf að fá leyfi frá þjálfurum og starfsfólki Bogfimisetursins).

Ef þú hefur spurningar endilega sendu okkur skilaboð á Facebook síðu okkar eða sendu okkur email á: boginn@archery.is

Ef þú ert að leyta af æfingum fyrir fullorðna erum við einnig með þær hér: Æfingar fyrir Fullorðna

Endilega kíkjið á fréttir frá okkar starfi til að sjá árangur okkar krakka og ungmenna.

Hlökkum til að sjá þig á næstu æfingu!