Sumarnámskeið 2024


Sumarnámskeið í bogfimi fyrir 10-12 ára og 13-17 ára

Bogfimifélagið Boginn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar. Námskeiðin verða haldin í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2, 104 Reykjavík. 

Bogfimi er vaxandi íþrótt á Íslandi og er þetta námskeið tilvalið fyrir börn sem vilja komast inn í íþróttina eða prufa hvernig er að skjóta boga og hitta í 10! Kennd verður helsta tækni við að skjóta af boga, taka þátt í keppnum og hafa gaman 🙂

Námskeiðinu er skipt í tvo aldurshópa sem eru á sama tíma en þeir eru sér, og skipt upp svo krakkarnir geta verið að skjóta með sínum aldurshóp. 10-12 ára (2014-2012) og 13-17 ára (2011-2007).

Hægt er að skrá fyrir og eftir hádegi:

Fyrir hádegi: 09:30 til 12:00

Eftir hádegi: 13:00 til 15:30

Verð: 

17.500 kr.

Systkinaafsláttur er 10%. 

Námskeið dagsetningar

Júní:

1. námskeið: 10- 14 júní

2. námskeið: 18 – 21 júní (4 dagar, verð 14.000 kr.)

3. námskeið: 24-28 júní

Ágúst:

4. námskeið: 6 – 9 ágúst (4 dagar, verð: 14.000 kr.)

5. námskeið: 12 – 16 ágúst

Hámark á námskeiðin eru 20 fyrir 10-12 ára og 12 fyrir 13-17 ára.

Skráning á Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/bfboginn