Bogfimifélagið Boginn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar. Námskeiðin verða haldin í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2, 104 Reykjavík.
Bogfimi er vaxandi íþrótt á Íslandi og er þetta námskeið tilvalið fyrir börn sem vilja komast inn í íþróttina eða prufa hvernig er að skjóta boga og hitta í 10! Kennd verður helsta tækni við að skjóta af boga, taka þátt í keppnum og hafa gaman :)
Námskeiðinu er skipt í tvo aldurshópa sem eru á sama tíma en þeir eru sér, og skipt upp svo krakkarnir geta verið að skjóta með sínum aldurshóp. 10-12 ára (2016-2014) og 13-17 ára (2013-2009).
Hægt er að skrá fyrir og eftir hádegi:
Fyrir hádegi: 09:30 til 12:00
Eftir hádegi: 13:00 til 15:30
Verð:
17.500 kr.
Námskeið dagsetningar
Júní:
- námskeið: 15- 19 júní (4 dagar, verð 15.000 kr.)
- námskeið: 22 - 26 júní
Ágúst:
- námskeið: 3 - 7 ágúst (4 dagar, verð: 15.000 kr.)
- námskeið: 10 - 14 ágúst
- námskeið: 17 - 21 ágúst
Hámark á námskeiðin eru 16 fyrir 10-12 ára og 6 fyrir 13-17 ára.
Skráning á Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/bfboginn
Nánari upplýsingar eða spurningar er hægt að hafa samband í gegnum: boginn@boginn.is