Bogfimifélagið Boginn (kt. 590712-1400) ber ábyrgð á þeim upplýsingum sem safnast þegar þú heimsækir boginn.is. Hér er lýst hvaða gögnum er safnað, af hverju og hvernig þú getur breytt vali þínu.
Af hverju söfnum við gögnum?
Við viljum vita hvaða upplýsingar fólk leitar að á vefnum, hvort það finnur þær og hvort það kemst í skráningu. Gögnin eru eingöngu notuð til að bæta vefinn og upplýsingagjöf félagsins. Þau eru ekki seld eða notuð til að birta þér auglýsingar.
Hvaða þjónustur notum við?
- Umami telur heimsóknir og síðuflettingar. Umami notar ekki vafrakökur og geymir ekki IP-tölur.
- PostHog sýnir okkur hvernig vefurinn er notaður, t.d. hvaða síður eru skoðaðar, á hvað er smellt og hvort fólk smellir á skráningarhnappa. Gögnin eru hýst í Evrópusambandinu.
Ef þú samþykkir vafrakökur
PostHog vistar handahófskennt auðkenni í vafrakökum og staðbundinni geymslu vafrans (localStorage) svo hægt sé að tengja saman heimsóknir sama tækis. Við gætum einnig tekið upp nafnlausar upptökur af notkun vefsins (smelli, skrun og hreyfingar á síðunni) til að sjá hvar fólk lendir í vandræðum. Texti sem sleginn er inn í reiti er falinn í upptökum.
Ef þú hafnar
Þá vistar PostHog engar vafrakökur eða önnur gögn í vafranum þínum. Heimsóknir eru aðeins taldar nafnlaust með auðkenni sem breytist daglega og ekki er hægt að tengja við þig.
Hvaða upplýsingar eru skráðar?
Síðan sem er skoðuð, hvaðan þú komst (t.d. af Facebook eða Google), tegund tækis og vafra, og áætluð staðsetning (land og borg) út frá IP-tölu. IP-talan sjálf er ekki geymd. Við tengjum gögnin ekki við nafn, netfang eða kennitölu.
Skráning og greiðslur
Skráning í æfingar og námskeið og greiðslur fara fram hjá Abler (Sportabler), sem hefur sína eigin persónuverndarstefnu.
Að breyta vali
Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er með því að smella á „Vafrakökustillingar“ neðst á hverri síðu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þau gögn sem við höfum um þig og að fá þeim eytt. Hafðu samband á boginn@boginn.is. Ef þú telur að ekki sé farið rétt með upplýsingar um þig getur þú leitað til Persónuverndar.