Íslandsmót U16 innandyra var haldið í Bogfimisetrinu í dag laugardaginn 02.05.2026. Voru þar fjölmörg ungmenni frá BF Boganum sem sum voru að taka sín fyrstu skref í keppni.
Magnús Darri var hins vegar ekki á sínu fyrsta móti, en hann er að keppa á sínu síðasta ári í U16 flokki. Í úrslitaviðureign náði hann 150 stigum af 150 stigum mögulegum. Þar sem hann er fyrstur til að skora fullkomið skor (í U16 og yfirhöfuð í íþróttinni) mun hann því eiga U16 metið að eilífu. Þar sem að til þess að bæta met þarf skorið að vera einu stigi hærra en eldra met. Framtíðar kynslóðir geta jafnað metið, en enginn mun geta bætt það og tekið það af Magnúsi.
