1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Tillaga um Guðmund Örn Guðjónsson til fundarstjóra og Valgerði E. Hjaltested sem fundarritara.
3. Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana.
Kynnti formaður ársskýrslu og var farið yfir vel heppnað ár í keppni og í fjölda þátttakenda frá BF Boganum á bæði erlendum og innlendum mótum væru ánægjuleg.
4. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar, umræða og atkvæðagreiðsla.
Lagðir voru fram endurskoðaðir ársreikningar og fór gjaldkeri yfir stöðuna á honum.
Ársreikningarnir voru samþykktir einróma.
5. Nefndir gefa skýrslur og umræður um þær.
Engar nefndir eru starfandi í félaginu og þess vegna var þessum lið sleppt.
6. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
Fjárhagsáætlun félagsins var kynnt fyrir árið 2023. Gert er ráð fyrir að félagsstarfið haldi áfram á svipaðan hátt og árið 2022 þannig engar róttækar breytingar á fjárhagsáætlun.
7. Lagabreytingar ef fyrir liggja.
Lagabreytingatillögur stjórnar voru samþykktar einróma í heild sinni, að mestu tiltekt í lögum m.a. tengt góðum stjórnháttum og 2 ára kjörtímabil í stað 1 árs og slíkt.
8. Kosin stjórn.
a. kosinn formaður
Framboð til formanns:
Oliver Ormar Ingvarsson
b. kosinn varaformaður og meðstjórnandi
Framboð til varaformanns:
Valgerður E. Hjaltested
Framboð til meðstjórnanda:
Dagur Örn Fannarsson
c. kosinn gjaldkeri og ritari
Framboð til gjaldkera:
Astrid Daxböck
Framboð til ritara:
Marín Aníta Hilmarsdóttir
d. kosnir tveir varamenn í stjórn
Framboð til varamanns:
Halla Sól Þorbjörnsdóttir
Heba Róbertsdóttir
9. Aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar.
Engar aðrar tillögur bárust stjórn.
10. Önnur mál.
Engin önnur mál voru rædd
11. Fundarslit.
Formaður félagsins þakkaði fundargestum fyrir komuna.