
Sumarnámskeið í bogfimi fyrir 10-12 ára og 13-17 ára
Bogfimifélagið Boginn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar. Námskeiðin verða haldin í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2, 104 Reykjavík.
Bogfimi er vaxandi íþrótt á Íslandi og er þetta námskeið tilvalið fyrir börn sem vilja komast inn í íþróttina eða prufa hvernig er að skjóta boga og hitta í 10! Kennd verður helsta tækni við að skjóta af boga, taka þátt í keppnum og hafa gaman 🙂
Námskeiðinu er skipt í tvo aldurshópa sem eru á sama tíma en þeir eru sér, og skipt upp svo krakkarnir geta verið að skjóta með sínum aldurshóp. 10-12 ára (2013-2011) og 13-17 ára (2010-2006).
Hægt er að skrá fyrir og eftir hádegi:
Fyrir hádegi: 09:30 til 12:00
Eftir hádegi: 13:00 til 15:30
Verð:
15.000 kr.
Systkinaafsláttur er 10%.
Námskeið dagsetningar
Júní:
1 námskeið: 12- 16 júní 2023
2 námskeið: 19 – 23 júní 2023
3 námskeið: 26 júní – 30 júní 2023
Júlí:
4 námskeið: 3 – 7 júlí 2023 (Aðeins 10-12 ára)
Ágúst:
5 námskeið: 8 – 11 ágúst 2023 (4 dagar, verð: 12.500 kr.)
6 námskeið: 14 – 18 ágúst 2023
Hámark á námskeiðin eru 16 fyrir 10-12 ára og 12 fyrir 13-17 ára.
Skráning á Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/bfboginn