
Bogfimifélagið Boginn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar. Námskeiðin verða haldin í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2, 104 Reykjavík.
Bogfimi er vaxandi íþrótt á Íslandi og er þetta námskeið tilvalið fyrir börn sem vilja komast inn í íþróttina eða prufa hvernig er að skjóta boga og hitta í 10! Kennd verður helsta tækni við að skjóta af boga, taka þátt í keppnum og hafa gaman 🙂
Aldur:
10 – 12 ára (2010 til 2012)
13 – 17 ára (2005 til 2009)
Námskeiðin skiptast eftir aldri og eru þetta í raun tvö mismunandi námskeið sem eru í gangi á sama tíma, þó með sama markmiði að kenna krökkum á að skjóta úr boga og undirstöðuna sem þarf til þess að hitta vel.
Tími:
Námskeiðin eru frá 9:30 til 12:00
Húsið opnar klukkan 09:00 og mega krakkar koma þá en ekki er byrjað að skjóta fyrr en 09:30.
Krakkar þurfa koma með gott nesti.
Verð:
5 dagar = 15.000 kr.
4 dagar = 12.500 kr.
Systkinaafsláttur er 10%.
Námskeið / Dagsetningar
Júní:
1 námskeið: 13 – 16 júní 2021 (4 dagar) (FULLT FYRIR 10-12 ára)
2 námskeið: 20 – 24 júní 2021 (5 dagar) (FULLT FYRIR 10-12 ára)
3 námskeið: 27 júní – 1 júlí 2021 (5 dagar) (FULLT FYRIR 10-12 ára)
Júlí:
4 námskeið: 4 – 8 júlí 2021 (5 dagar)
Ágúst:
6 námskeið: 8 – 12 ágúst 2021 (5 dagar)
Skráning fer fram á https://www.sportabler.com/shop/bfboginn
Hámarksfjöldi þátttakanda á námskeiðunum 10-12 ára er 12 (18 á námskeiðum 3,4, 5 og 6)
Hámarksfjöldi þátttakanda á námskeiðunum 13-17 ára er 18.
Hægt er að nálgast fleiri upplýsingar með því að senda á boginn@archery.is
Yfirþjálfarari námskeiðsins er:
Valgerður Einars. Hjaltested